Nafn á nýja, fjölnota farþegamiðstöð

Við leitum að nafni á nýja, fjölnota farþegamiðstöð sem þjóna mun farþegum skemmtiferðaskipa á sumrin og hýsa fjölbreytta viðburði á veturna.

Við viljum að nafnið sé þjált, falli vel að íslenskri málhefð og sé ekki tungubrjótur fyrir þau sem tala önnur mál, því í miðstöðinni bjóðum við gesti alls staðar að úr heiminum velkomna til Reykjavíkur og Íslands.

Við vitum að rétta nafnið er þarna einhversstaðar úti og okkur langar til að heyra hvað þér dettur í hug!

Skilafrestur tillagna er til miðnættis 1. febrúar 2026

TAKK!
Kærar þakkir fyrir þátttökuna. Við tilkynnum um sigurtillöguna á faxaflohafnir.is og látum höfund hennar vita með tölvupósti þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

1. Skipuleggjandi samkeppni

Faxaflóahafnir sf. efna til nafnasamkeppni um nýja farþegamiðstöð á Skarfabakka við Viðeyjarsund, sem opnar á vordögum 2026. 

2. Þátttökuréttur  

– Keppnin er opin einstaklingum með lögheimili á Íslandi, þó með undantekningum sem koma fram hér að neðan.  
– Yngri en 18 ára er velkomið að taka þátt, en geta hvorki hlotið né nýtt  verðlaun samkeppninnar. Beri þátttakandi yngri en 18 ára sigur úr býtum hljóta forráðamenn viðkomandi verðlaunin.

Ekki verður tekið við tillögum frá eftirfarandi aðilum:
– Starfsfólki Faxaflóahafna sf. og nánum aðstandendum þess, þ.m.t. mökum/sambúðarmökum, foreldrum og börnum. 
– Stjórnarfólki Faxaflóahafna sf. og nánum aðstandendum þess, þ.m.t. mökum/sambúðarmökum, foreldrum og börnum.  
– Meðlimum dómnefndar og nánum aðstandendur þeirra, þ.m.t. mökum/sambúðarmökum, foreldrum og börnum.   

3. Innsending og úrvinnsla tillagna

– Hver þátttakandi getur sent inn fleiri en eina tillögu, þó hverja tillögu aðeins einu sinni. Berist sama tillaga oftar en einu sinni frá sama þátttakanda verður ekki tekið við neinni þeirra. 
– Með hverri tillögu skal fylgja stuttur rökstuðningur (10-100 orð).  Ekki er tekið við tillögum án rökstuðnings. 
– Innsending tillögu jafngildir samþykki þessara skilmála.  
– Berist sama tillaga frá tveimur þátttakendum og rökstuðningur er í báðum tilfellum fullnægjandi að mati dómnefndar, ræður hlutkesti hvor tillagan verður fyrir valinu. 
– Berist sama tillaga frá þremur eða fleiri þátttakendum og rökstuðningur er í öllum tilfellum fullnægjandi að mati dómnefndar, verður dregið á milli tillagna um hver verður fyrir valinu. 
– Aðrir þátttakendur sem sendu inn sömu tillögu og vinningstillögu verða ekki taldir meðhöfundar að sigurtillögunni og fá ekki verðlaun.  

4. Valferli og úrskurðarvald dómnefndar  

– Dómnefnd skipuð af Faxaflóahöfnum sf. fer yfir innsendingar og velur nafn. 
– Dómnefnd hefur úrskurðarvald í öllum málum sem snúa að vali sigurvegara og túlkun reglna. Dómnefnd er ekki skylt að birta rökstuðning fyrir ákvörðun sinni.  
– Ákvarðanir dómnefndar eru endanlegar og ekki unnt að áfrýja þeim.  

5. Verðlaun

Sigurvegari keppninnar hlýtur siglingu fyrir tvo með Norwegian Star frá Reykjavík til Southampton á Englandi, á tímabilinu 2.–12. júlí 2026 með viðkomu á Ísafirði, Akureyri, Maloy í Noregi, Lerwich á Hjaltlandseyjum, Inverness og Edinborg í Skotlandi

Innifalið er:
– Herbergi með svölum (balcony cabin)
– „Free at Sea“ pakki frá Norwegian með tveimur bar- og kvöldverðarpökkum (2 unlimited open bar package, 2 nights speciality dining), Wi-Fi pakka, inneign í skoðunarferðum (1x $50 shore excursion credit per port), þjórfé (gratuites), skattar og gjöld (all government fees and taxes).
– Flug frá Bretlandi til Íslands að lokinni siglingu fyrir þá tvo einstaklinga sem í siglinguna fara í formi endurgreiðslu á flugkostnaði að hámarki samtals 200.000 kr

6. Skilmálar

– Verðlaunin eru óframseljanleg.
– Beri þátttakandi yngri en 18 ára sigur úr býtum hljóta  forráðamenn viðkomandi verðlaunin.
– Dagsetningum siglingarinnar verður ekki breytt.
– Dagsetning flugs frá Bretlandi til Íslands þarf að liggja fyrir áður en sigling hefst og eigi síðar en 1. apríl 2026.
– Vinningshafi getur fengið endurgreiðslu á flugkostnaði að hámarki samtals 200.000 kr fyrir flug frá Bretlandi til Íslands að lokinni siglingu gegn framvísun kvittana. Flugin skulu farin á tímabilinu 1. apríl – 1. september 2026. Staðfestingu á flugkostnaði og kvittunum skal skilað eigi síðar en 15. september 2026 ásamt greiðsluupplýsingum.
– Faxaflóahafnir sf. tengja vinningshafa við Norwegian Cruise Line sem ber þaðan í frá sjálfur ábyrgð á samskiptum skipafélagið s.s. staðfestingu bókana og miðlun upplýsinga sem farið er fram á. Beiðnum, sérþörfum, uppfærslum eða öðrum atriðum sem tengjast siglingunni skal beint milliliðalaust til Norwegian Cruise Line og lúta þeirra eigin skilmálum og reglum. 

 8. Höfundarréttur og notkun innsendra tillagna

– Með þátttöku veitir þátttakandi skipuleggjanda ótakmarkaðan rétt til að nota innsenda nafnatillögu í þágu farþegamiðstöðvarinnar og starfsemi Faxaflóahafna, þar á meðal rétt til að breyta, aðlaga eða nýta hugmyndina á hvaða hátt sem er.  
– Þátttakandi afsalar sér með þátttöku hvers kyns kröfum um greiðslur eða þóknanir fyrir notkun nafnatillögunnar annarra en verðlaunum, að skilmálum uppfylltum.  

 9. Meðferð persónuupplýsinga  

– Persónuupplýsingar sem aflað er í tengslum við keppnina eru einungis notaðar til að vinna úr keppninni og hafa samband við sigurvegara.  
– Meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf.  

 

10. Breytingar og framkvæmd  

– Faxaflóahafnir áskilja sér rétt til að breyta reglum keppninnar eða fella keppnina niður, kjósi þær svo. 
– Mögulegar breytingar á fyrirkomulagi keppninnar verða kynntar á vefsíðu Faxaflóahafna. 

 

11. Samþykki þátttakenda

Þátttaka í keppninni telst staðfesting á því að þátttakandi hafi kynnt sér og samþykkt skilmála og reglur keppninnar.  

 

Vegleg verðlaun

Vinningshafi samkeppninnar hlýtur að launum tíu daga skemmtiferðasiglingu fyrir tvo, dagana 2.-12. júlí 2026. Lagt verður upp frá nýju farþegamiðstöðinni. Vinningshafi fær til afnota glæsilegan svalaklefa og margvísleg fríðindi meðan á siglingu stendur, sem og flugferð fyrir tvo til baka til Íslands. Í siglingunni verður komið við á Ísafirði, Akureyri, Maloy í Noregi, Lerwich á Hjaltlandseyjum, Inverness og Edinborg í Skotlandi áður en lagst er að bryggju í Southampton.

Dómnefnd

Vigdís Hafliðadóttir

textahöfundur og listamaður
formaður dómnefndar

Gunnar Tryggvason

hafnarstjóri Faxaflóahafna

LÍf Magneudóttir

formaður stjórnar Faxaflóahafna

Farþegamiðstöðin

Vorið 2026 taka Faxaflóahafnir í notkun nýja, fjölnota farþegamiðstöð sem þjónusta mun þann mikla fjölda farþega skemmtiferðaskipa sem hingað kemur ár hvert. Farþegamiðstöðin tryggir betri þjónustu við ferðamenn og styður markmið Faxaflóahafna um fjölgun skiptifarþega; þeirra sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf.

Utan annatíma skemmtiferðaskipa, frá október og út mars ár hvert, verður farþegamiðstöðin vettvangur fjölbreyttra viðburða og veisla af öllum stærðum og gerðum. Það er Múlakaffi sem annast þann rekstur hússins utan sem rúmar allt að 2.000 veislugesti.

Kynnið ykkur glæsilegu veislusalina hér.

Faxaflóahafnir – 100 ára hafnarsaga

Áður en símstrengir og flugvélar komu til sögunnar voru skip tengiliður Íslands við umheiminn. Vörur, fólk og fréttir komu sjóleiðina til landsins. Frá því höfnin varð til hefur hún verið þungamiðja atvinnulífs í Reykjavík og mæla mátti efnhagsástand þjóðfélagsins eftir ysinum við höfnina. 

Með tímanum hefur hlutverk hafnarinnar lítið breyst, þótt allt sé nú stærra í sniðum. Saga hafnar er saga bæjar í borg, saga þróunar, uppbyggingar og aukinna lífsgæða. 

Faxaflóahafnir eru afsprengi þessarar arfleifðar og byggja á 100 ára hafnarsögu. Þar sem reynsla, þekking og samvinna hafa spilað lykilþátt í þróun og uppbyggingu innviða. 

Í dag leggjum við okkur fram við að reka öruggar, grænar og skilvirkar hafnir sem gegna fjölbreyttum hlutverkum á sviði sjávarútvegs, ferðaþjónustu, vöruflutninga, afþreyingar og menningar. 

Þannig hafa hafnir á Faxaflóasvæðinu ávallt þróast í takt við þarfir samfélagsins, með það að markmiði að auka lífsgæði á Íslandi.